Færsluflokkur: Bloggar
9.11.2008 | 20:32
Ísland i dag
Ríkis og seðlabankastjórn eru komin á endastöð, ef þeim aðilum sem þar eru finnst vænt um þjóðina þá er ekki spurning um að þeir fara frá.
Það kastar enginn steini í aðila sem biðjast afsökunar á mistökum eða sýna eftirsjá yfir gerða eða ógerða hluti,allavega ef viðkomandi sýnir að hann meinar það.
Afturá móti eru meiri möguleikar á því ef reynt er að sópa yfir mistökin eða framkvæma aðgerðir sem hafa þann eina tilgang ekki sé hægt að benda á einstaka persónur.
En nú eru að byrja nýir tímar, og okkur Íslendinga vantar ný öfl í þjóðfélagið, nýjan flokk með fólki sem er með þekkingu á þeim vanda sem við er að etja, ég er sannfærður um að ef safnað yrði í flokk sem yrði byggður af Íslendingum með þekkingu á þeim málum sem glíma á við, þá yrði sá flokkur í fararbroddi innan mjög skamms tíma, það eru flestir búnir að fá nóg, og okkur vantar nýja stjórn mjög fljótlega, trausta stjórn, ekki hagsmunapólitík.
Það skiptir ekki máli hvort þarf 1000 manns eða 100000 til að knýja fram kosningar og koma stjórninni frá, það er hægt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2007 | 16:25
Sykursýki og mín reynsla ?
Bara svona í byrjun um mig , þá var ég í meðal holdum þangað til ég var orðin 18 eða 19 ára, þá blés ég út og bætti á mig 30 kílóum á þrem árum, þá fór ég í fyrsta og eina skipti í líkamsrækt, á stöð sem hét orkubót við grensásveg var þar í nokkra mánuði og tók af mér um 10 kíló, greindist svo með insulinháða sykursýki um páskana 1983.Var alla páskana svakalega þurr í munninum og pissaði mikið,vaknaði á nóttinni til að drekka, fór svo eftir páska til heimilislæknis og var daginn eftir lagður inn á spítala, þar tók á móti mér Dr Ástráður Hreiðarsson, sem fór í gegnum það sem mín beið, að sprauta mig og hvað ég ætti að borða mikið af kolvetni hvern dag, ég man að ég var settur á 18 k sem er 180 gr af kolvetni yfir daginn, ég hélt þessu plani í nokkur ár vigtaði allt sem ég setti ofaní mig og borðaði bara samkvæmt því. Varð bara fit og fínn í holdarfari og leið vel, svo fóru hlutirnir að breytast ég fór að átta mig á að ég kunni þetta allt orðið, þekkti líkamann var farinn að læra að svindla maður bara sprautaði sig aðeins meir og gat þá borðað meir, svo uppúr 1990 þá kom unglingaveikin í þessu, ég kunni allt og gat allt, þurfti ekkert að heimsækja doktorinn eða mæla mig, ég bara dæli mínum ákveðna skammti af insulíni og borðaði svo bara að mestu leiti það sem mér datt í hug, en með því voru fylgikvillar, ég datt út , of lár(of lítið kolvetni á móti insulini) og það skeði oft að ég varð í bulli með þetta,það kom td. tvisvar fyrir að viðskiptavinir komu inná verkstæði til mín og héldu að ég væri fullur, en einhverra hluta vegna gerði ég ekkert í þessu samt,fannst þetta allt í þokkalegum málum, Svo árið 1997 dó tengdapabbi minn og það kom mér til að hugsa um mína heilsu, hann var 62 ára sem var allt of ungt, en ég hafði áhuga á að láta lífernið ekki eiðileggja meir en komið var, svo ég fór að mæla blóðsykurinn aftur og fara í eftirlit, en ég hafði fitnað helling og hélt svo áfram að fitna, og þó stjórnunin væri ágæt þá stoppaði það ekki fyrr en ég var kominn´yfir hundrað og tuttugu kíló búinn að fá aðvörun frá læknum um of háan blóðsykur og kolestrol, var að komast að hættumörkum,þetta var seint árið 2002 ég breytti til og reyndi að hafa betri stjórn á matnum, en einhvern veginn þá er maður fýkill á mat og þetta bara gekk ekki,úrkula vonar þá ákvað ég að prufa (kvennasullið) sem mér fannst , "herbalife", það var 4 júlí 2003, en um það leiti var ég líka orðinn örvættingarfullur,svo það var bara skellt í sig sjeik í 2 mál og reint að halda í við sig í kvöldmáltíðinni heima, og þetta gekk bara þrusu vel ég meira séa skar ekki niður skinnkuhorn sem við vorum að borða í kaffinu fyrr en eftir hálft ár, svo fyrir mér var nóg að taka þetta skref fyrir skref, en 2árum seinna var ég búinn að taka af mér 35kíló og leið æðislega.Ég var búinn að minnka fljótvirka insulinið til dæmis á morgna úr 16 einingum niður í 4-6´+langtímainsulinið, (en insulin er lika fitandi) og það var svo auðvelt að vita alltaf hvað maður borðaði (kolvetni) svo stjórnunin var meiriháttar,langtímamælingar 6,5 og alveg niður í 6,1, sem er alveg mega flott. En maður er með fullt af göllum og það var náttúrulega ekki hægt að halda sér svona góðum ,ég bætti á mig einhverjum kílóum en ekkkert rosalega en lenti svo í árekstri og fór ekki vel í baki og var hjá sjúkraþjálfara til síðasta vors og var í fullt af æfingum líka + að fara á hlaupabretti heima hjá mér, þá hélst þetta að mestu í lagi, en svo þegar það hætti og ég fór að slaka á þá tók mig nokkra mánuði að bæta á mig hátt í helming af því sem ég hafði létt mig, enda átfýkill mikill, það er rosalegt að lenda í svona kæruleysi, þetta er jú mitt líf sem ég er að gambla með, og þó maður borði sjeik alla morgna þá er það líka spurning hvað og hversu mikið annað maður borðar, en í oktober eða nóvember gaf ég samþykki að birta aftur mynd af mér með minni sögu í mbl á vegum Herbalife, og það var rosa erfitt að glíma við samviskuna vitandi að maður hafði ekki staðið sig en samt á heilsíðu , svo þá var komið stopp,og ég ákvað að taka aftur á þessu og ná mér aftur niður og halda mér þar , en ég ber virðingu fyrir fólki sem tekst að halda sér í því formi sem það hefur komið sér í,hvernig svo sem það hefur gert það, með góðri næringu eða og hreifingu, sem ég áttaði mig á að er algjör forsenda fyrir góðum lífsstíl, ég dustaði rykið af hlaupabrettinu mínu í morgun, sem hafði ekki verið notað af mér síðan í vor, en hálf tíma hreyfing á dag er að mínu mati nauðsynleg til að halda líkamanum í formi +góð næring hvort sem er herbasjeik eða einhver annar, ég þekki bara herbann og finnst hann æðislegur, en það eru örugglega til fleiri gerðir sem eru í lagi.Aðalatriðið er að vera tilbúinn í breyttan lífstíl, það þíðir ekkert að ná sér niður og byrja svo aftur gamla lífstílinn,en maður hneygist soldið mikið til þess, enda sjálfsagt margir búnir að lifa þanning í fleiri fleiri ár svo það tekur tíma að breyta því. Ég ætla að passa mig um hátiðirnar borða bara normal af því sem ég borða og svo 10 janúar fer ég í heilsuklúbb sem við á herbalife erum með 4 vikur í senn og ég hef ákveðið að reyna muna eftir að skrifa hér mína þanka og hvernig gengur, en ég ætla að vera búinn að vinna mig aftur niður fyrir páska, það væri frábært ef þessi skrif gætu komið einhverjum að notum, eða aðrir gætu líka komið með sýna sögu inní ,því við viljum jú að sem flestir lifi heilbrigðu lífi og fyrirbyggi vandamál .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Sigurður Halldórsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar