Færsluflokkur: Lífstíll
3.2.2008 | 00:09
Flottir tveir dagar
Magnaður dagur, fór í boði bróður á fyrirlestur með Jack Canfield, alveg magnaður gæi og oppnaði fullt af möguleikum, enda getum við allt sem við ætlum okkur , það er bara spurning um að finna leiðina, verst að þegar ég kom heim og fór á brettið og horfði á Man u v tottenham vera spila ílla og vera heppna að ná jafntefli
En dagurinn í dag og gær alveg frábærir sykurlega séð engin mæling yfir 8 og bara flott ástand . reyndr soldið lár i hádeginu í dag, hafði ekki reiknað með brennslu i morgun, en líkaminn er enn að vinna vel eftir erfiða viku, svo bara góður , nú er bara keyra 'a nokkra sentimetra fyrir 5 feb.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2008 | 00:53
Mælingar
Já þá er komið að því, þriðja vika og ekki var það neitt rosalegt , sentimeter af mitti og annar af mjöðm, en þetta er á niðurleið svo maður verður bara að vera sáttur, það þýðir ekkert að ætla sér að taka þetta af á einum mánuði , þetta kemur bara rólega, en kemur samt, en þá dagurinn í dag, var 5,6 í morgun og að venju sjeik borðaður, ekki annað íi myndinni, svo 4.2 í hádeginu og lika borðað sjeik , reyndar próteinbar í morgun um 10 leitið, svo 6,4 undir kvöldmat og borðað kjötrétt farið svo á handboltaæfingu og eftir hana kl 23 var ég 6.7 enda hafði lika aðeins borða sætabrauð áður en ég fór út á æfingu. læt það bara vera gott fyriir nóttina sprautaði bara langvirkt 10 ein. Ég er mjög sáttur við hvernig mér hefur gengið með næturnar núna , enda morgunmælingar flottar, þakka það lika þessum pælingum um miðnættið og skrifum,
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2008 | 00:19
Allt við það sama
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2008 | 22:47
Hreyfing eða ekki
Var búinn að gleyma hversu mikill munur er á brennslunni, ef maður er að vinna skrifstofuvinnu eða í action, var að losa gám af pústkerfum í allan dag og var bara í vandræðum með að bæta á mig kolvetnum, var 4,2 í morgun spautaði 6 ein fljótvirkt og borðaði eins og alltaf sjeik, þurfti svo að bæta á mig próteinbar og þrúgusykri kl 10 í morgun, var samt 2,8 kl 12.30 og sprautaði þá 4 ein borðaði sjeik og bætti svo á mig um 3 leitið borðaði þá 3 eða 4 þrúgusykur og svo eitt próteinbar, þau eru mega góð til að hafa kolvetni í langan tíma því líkaminn brýtur þau niður á nokkrum klukkutímum, var svo 3,2 kl 19, eftir mega dag í hreyfingu og (bakverk) eftir burð , bera helling af pústi inní hús úr gámi, og fleiri stk bíða morgundagsins :) borðaði svo kvöldmat, sennilega alltof mikið því ég var 12,4 kl 22 svo ég þurfti að bæta á mig fljótvirku 4 ein, kl 22 +10 langvirkt, maður er ekki alltaf með á hreinu virknina í likamanum, og eftir svona action þá gleymir maður sér yfir matnum :) en svona er þetta, það eru yfirleitt ekki neinir tveir dagar eins hjá mér, sem væri náttúrulega það besta fyrir okkur sykursjúklingana, copy, paste , dag fyrir dag he he
Lífstíll | Breytt 1.2.2008 kl. 00:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2008 | 01:53
Bara flott
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2008 | 02:16
Bara gott
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2008 | 01:34
Rólegur dagur
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.1.2008 | 01:38
Skrítinn dagur
Það ótrúlega gerðist í dag að ég gleymdi að borða í hádeginu, held það hafi ekki skeð nema kanski einu sinni, í þau 25 ár sem ég er búinn að vera með sykursýkina, þegar ég vaknaði í morgun var ég 8.7 sem eg átti alveg eins von á eftir gærkvöldið, en svo var vörutalning hjá mér í dag og bar sökkti mér svo í það að það var ekki kaffi eða matartími, fannst ég samt vera að lækka í sykrinum um ellefuleitið og fékk mér próteinbar, svo ekki söguna meir fyrr en ég kveikti á perunni um hálf fjögur, þá sprautaði ég mig 6 ein og fékk mér sjeik, en eftir lætin þá var það of mikið því um kvöldmatinn var ég orðinn alltof lár ,LO á mælinum og tók langan tíma að ná mér upp aftur,samt var ég alltaf með þokkalega eðlileg viðbrögð þó maður verði sljórri þegar maður verður svona lár, fyrir einhverjum árum síðan var ég bara eins og ég væri blind fullur ef ég ver kominn niður´undir 2 en núna var ég samt ekki alveg eðlilegur fyrr en um 9 leitið,samt soldið skrítinn og slappur, en svo sykurinn 7 um 22.30, sem er bara fínt.
Svo það skrítna er að núna tæplega hálf tvö um nóttina mældi ég mig og þá var ég 9.7, samt hef ég ekkert borðað frá kl 19.30, þetta er bara eitt af því sem maður bara fattar ekki , líkaminn eitthvað að taka stjórnina sjálfur, ég borðaði þrúgusykur og svo borgara með salati um kvöldmatinn sem ætti að vera meltanlega búið að brjótast niður kolvetni 2 til 3 tímum eftir það en ekki 4 til 6 tímum eftir það,
Bara skil ekki því ég hækka um 2.7 milli 22.30 og 1.30 samt sprautaði ég 10 ein langvirkt insulin kl 22.30, þetta er eitthvað sem ég verð að geyma í minnisbankanum fyrir Ástráð lækni, en líkaminn fer stundum furðulegar leiðir, sem enginn fattar, spurning hvort hann er að gefa kolvetni sjálfur í kvöld eftir að hafa lækkað svona fram eftir degi, Úr því hann gefur okkur kolvetni um kl 4 um nóttina þá er mjög liklegt að hann bregðist svona við því að vera lár í nokkurn tíma, bætti við 3 ein fljótviirkt nuna til að jafna dæmið, þori ekki að hafa það meira , nenni ekki að vera í svitabaði í nótt, ef ég myndi lækka of mikið.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2008 | 00:26
Mælingar
Jæja morguninn ,mældur í bak og fyrir, og það hurfu 2 cm , einn af mitti og einn af mjöðmum, samtals farnir 7 á hálfum mánuði, enginn met hraði en allavega á niðurleið, svo bara halda áfram, reyndar var farið á salatbar í hádeginu og borðað kínverskt í kvöldmatinn, en farið samt í handboltann kl 21, soldið svona afmælisdagur, en var 6 í sykri í morgun og sprautað 6 ein og var samt 9 í hádeginu verð að fara auka morgun skammtinn, sprautað 8 ein fyrir salatbarinn og súpuna, meiriháttar gott hjá þeim í Cab inn hótelinu, og svo var ég 7.2 fyrir kvöldmatinn. sprautað 10 ein og var svo kl 23 eftir handboltann 10.4 kínamaturinn soldið sætur, mikið af kolvetnum, bætt við 3 ein fljótvirkt og 10 langvirkt, vona það dugi fyrir nóttina, var kominn með jafnvægið tvo morgna í röð ,þetta gæti breytt því, sjáum til.
ég þarf að auka brennsluna og spurning um að bæta aðeins við brettanotkunina, ekki neinn svaka hraða bara ganga rösklega en lengja tímann úr hálftíma í 40-45 mín, reyni að stíla inná það næstu daga, sjá hvað það gerir.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2008 | 01:21
Frábær leikur hjá strákunum
Já eftir nokkrar mínutur í vandræðum small allt saman og Snorri Steinn brilleraði, greinilegt að það var það sem vantaði uppá sjálfstraustið og liðssamleikinn, gefur tóninn fyrir spánverjaleikinn.
En minn dagur , flottur morgunn 5.0 í sykri sprautað 5 ein , hefði mátt vera 6 , því ég var 9 í hádeginu, líka í ljósi þess að penninn var á lokakaflanum, sem þíðir að virknin er orðin minni. en farið í Cranio í skálatúnslauginni hjá Baldey , frábær tími, var draghalltur í gær, skildi ekki hvernig ég náði rútínu á brettinu þá og lítið betri í morgun, en var allt annar eftir cranioið og orðinn góður í löppinni um hádegið svo orkusviðið hefur aldeilis virkað, maður er orðinn háður því að fara í þessa tíma :) bara nauðsynleg næring fyrir innri líffærin og slökun, en ok dagurinn svo bara fínn kom heim kl 18,30 beint á brettið fyrir leik, borðað létt hrökkbrauð og skyr, er algjör skyrsjúklingur he he, enginn heima svo ekkert eldað, horfði á boltann og svo byrjaði liðið að tínast heim, stór fjölskylda en allir í einhverju, ökuskóla, leiklist og vinnu. Gott kvöld og jafnvægi og svo mæling í fyrramálið, spenntur fyrir því.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sigurður Halldórsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar