9.11.2008 | 20:32
Ísland i dag
Ríkis og seðlabankastjórn eru komin á endastöð, ef þeim aðilum sem þar eru finnst vænt um þjóðina þá er ekki spurning um að þeir fara frá.
Það kastar enginn steini í aðila sem biðjast afsökunar á mistökum eða sýna eftirsjá yfir gerða eða ógerða hluti,allavega ef viðkomandi sýnir að hann meinar það.
Afturá móti eru meiri möguleikar á því ef reynt er að sópa yfir mistökin eða framkvæma aðgerðir sem hafa þann eina tilgang ekki sé hægt að benda á einstaka persónur.
En nú eru að byrja nýir tímar, og okkur Íslendinga vantar ný öfl í þjóðfélagið, nýjan flokk með fólki sem er með þekkingu á þeim vanda sem við er að etja, ég er sannfærður um að ef safnað yrði í flokk sem yrði byggður af Íslendingum með þekkingu á þeim málum sem glíma á við, þá yrði sá flokkur í fararbroddi innan mjög skamms tíma, það eru flestir búnir að fá nóg, og okkur vantar nýja stjórn mjög fljótlega, trausta stjórn, ekki hagsmunapólitík.
Það skiptir ekki máli hvort þarf 1000 manns eða 100000 til að knýja fram kosningar og koma stjórninni frá, það er hægt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2008 | 13:35
Krónan í lausu lofti, af hverju? Davið Oddson?
Ekki hef ég nú talið mig hafa mikið vit á pólitík, en maður bara er klumsa eftir að heyra hvern fréttaflutninginn á fætur öðrum, lesa hverja greinina á eftir annari, og ja ,fyrir leikmanninn þá benda öll spjót á (aðgerðir og aðgerðarleysi seðlabankans) Davíð Oddson var að mörgu leiti mjög góður stjórnmálamaður, gerði oft það sem gera þurfti, var sennilega að mestu nánast einráður, og við kannski bara þurfturm þess á stundum. Núna eru aðrir tímar og kallinn ekki í stjórn.og á ekki að vera að bögga stjórnina.
Það getur vel verið að baugsfeðgar hafi gert á hlut Davíðs og honum finnist hann þurfa pay back, en ef það er rétt að það hafi verið núna á þessum krísu tímum, og á þann máta að það kosti þjóðina gífurlega fjármuni, og álitshnekki, ja þá er kallinn meiri skúrkur en þeir sem gerðu á hans hlut. Þetta þarf að rannsaka í kjölinn, núna strax og ef þetta er rétt sem fram hefur komið, að aðgerðir í glitnismálinu hafi verið siðlausar, og rangar, (stolið láni frá þeim) þá á að setja kallinn af strax.
Það á að vera kunnáttufólk í seðlabankanum sem hefur getu og hugsar um það sem það er að gera, ef við ein þjóða höfum ekki verið með á nótunum og ekki gert neitt, nema einhverjar vitleysiákvarðanir , ja þá segir það sig sjálft að stjórnendurnir i bankanum hafa ekki staðið sig , og þá sýnir það sig að gamlir pólitíkusar henta ekki, enda verkefni fyrir prófessional menn í fjármálum.
Það þíðir ekkert annað en að brosa og horfa framávið, vona að allt fari vel, við Íslendingar eru hyper bjartsýn þjóð og það þarf akkurat núna, en menn eru líka meiri menn ef þeir afsaka sig og viðurkenna það sem þeir gera rangt, segja svo bara af sér, frekar en að láta stilla sér upp við vegg og vera skotmark lon og don,eða láta setja sig af. það er alltaf hægt að fyrirgefa mönnum ef þeir afsaka sig og taka því meðan á því stendur.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2008 | 00:49
Dælan
Jæja þriggja vikna dælutími búinn og þessi tími er bara eins og margt annað í lífinu að eftir því sem maður veit meira þá áttar maður sig á að maður veit minna :)
En er búinn að vera mikið inná Landsspítala og Erna hjúkrunarfulltrúi er algjör demantur í þessu, hafsjór af fróðleik og svakalega áhugasöm um að allt gangi upp, ómetanleg í eftirfylgninni.
Lenti líka á löngu spjalli við Berthu matvælafræðing, og hún er með fullt af skynsemis línum, og frábærir punktar hjá henni um hina gullnu meðalreglu, það er ekki allt bannað heldur er betra að leyfa okkur einstaka sinnum að borða það sem ekki er æskilegt. En muna samt að hollustan er aðalatriðið en einstaka sinnum getum við brotið það blað og fengið okkur annað, en samt finnst mér magnað að hugsa til þess sem hún sagði um máltíðirnar, að borða reglulega en ekki millimála, þetta er nefnilega alveg magnað, ég held við Íslendingar borðum oft fullt af sukki milli mála, svo sleppum því og ef við fáum okkur eitthvað óholt , þá gerum það á matmálstímum, og tökum annað út í staðinn :) ekki bæta því við matinn.
Þá dælan, Erna er búin að stilla af dæluna fyrir mig útfrá mínum mælingum og ég hef greinilega áður verið of oft lár á sykri,en núna eru næturnar frábærar og dagarnir góðir ef ég næ að stilla insulin matarskammtana, en það getur oft verið erfitt að finna út kolvetnið í máltíðinni sem maður borðar, eitthvað sem ég þarf að vinna betur í, en þetta system er að virka eins nálægt brisinu eins og kostur er á, og magnað að við fólkið erum með mismunandi líkama sem virkar mismunandi,
Insulin sem við sprautum okkur með virkar engan vegin eins og dælan , þar sem hægt er að aðlaga dæluna að hverjum og einum eins og brisið gerir, svo þetta er bara snilld
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2008 | 00:55
Nú er það dælan
Já var í morgun á kynningu hjá Ernu,hjúkrunarkonu á göngudeild sykursjúkra og var hún að fara í gegnum dæmið, sýna mér dæluna og hvernig þetta virkar. Þetta verður soldil dagsskrá, kynning og að fá dæluna 2 fimmtudaginn 27 og 1 Apríl þá verður hún sett upp hjá göngudeildinni. Þetta verða svolítil viðbrygði að vera alltaf með tæki tengt með slöngu í sig, en miðað við hvaða möguleika maður hefur í insulingjöf þá held ég að þetta sé algjör snilld, og hitt er bara spurning um tíma að venjast að hafa þetta á sér.
Hún lagði upp að ég talaði við fótasnyrti sem þeir eru með á göngudeildinni og það var skoðað fætur og ég get bara sagt að ég fór skælbrosandi útþ Ég hef oft verið með sár á leggjunum sem hafa verið lengi að gróa, týpíst sykursýkisdæmi, og sagði hún mér að fínu háræðarnar framan á leggjunum skemdust oft á fyrstu árum sykursýkinnar og þær endurnýjuðu sig yfirleitt ekki, og kláðinn þar þegar ég er of hár í sykri er eðlilegur en væri hægt að koma í veg fyrir með því að bera krem á leggina, svona forvörn, ég var reyndar byrjaður í fyrradag að ber á þá skin activator, og ætla að sjá hvort það gerir eitthvað fyrir húðina þar, en henni fannst nú soldið bruðl að vera eyða dýru andlitskremi á leggina en so what :) ef það virkar og gerir húðina betri.
En annað hún mældi æðasláttinn í fótunum og titring sem er til að finna næmnina í fótunum sem yfirleitt er minni hjá okkur sykursj, en á skala sem hún var með og sagði að flott væri að nema þetta undir 50 þá væri það flott. Ég var að nema þeta á tölunni 7 sem er bara rosalega flott, og sýnir að maður hefur aðeins kunnað að meðhöndla sig þó ekki alltaf hafi verið rétt gert, þá kunni maður að svindla sem gerði það að að verkum að skemmdir hafa orðið litlar, svo fór allt blóðstreymi á flug niður í fætur eftir að maður fór að taka inn Male Factor 1000, svo ég tali nú ekki um Nite Works, þarf oft að fara úr sokkum af því mér er of heitt á fótunum, eitthvað sem maður bara kannaðist ekki við hér áður.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2008 | 01:11
Þetta tímabil búið.
Jæja þá er 10 feb til 5 mars tímabilið búið, ekki var nú síðasta vika beysin, bara nokkur hundruð grömm og 1 cm af en, hitavella hálsbólga og slappleiki hafði áhrif, lítið um hreyfingu aðeins 4 daga af tíu en samt komið 4,7 kíló og 15 cm af síðan 10 jan svo þetta kemur bara í rólegheitunum og jafnvel fyrr ef maður fer á fullt í hreyfinguna, sem er greinilega lykilatriði á hverjum degi og jafnvel tvisvar á dag. ef maður ætlar að ná sér niður með látum.
Svo smá í sambandi við hita og slappleika, það er magnað hvað það dregur úr brennslunni, því sama fæðuplan 2 sjeikar á dag og ekki borðað yfir sig í kvöldmat, þá þurfti ég að keyra insulingjöf á fljótvirka insulininu úr svona 6 einingum í 10-12 í hvert sinn og stundum bætt enn meira við á milli, svo það hægist ekkert smá á allri starfsemi. En þetta er komið í gang aftur þó hóstinn sé ekki alveg farinn svo maður prufar handboltaæfingu annað kvöld og sér hvernig það gerir sig.
Svo er ég að fara á föstudaginn á göngudeild sykursjúkra með mælingarnar undanfarið og kynna mér dælubúnaðinn, og ef allt er í góðu þá verður maður kominn með dælu ( sem gefur sjálvirkt insulin stöðugt og svo hnappur til að þrýsta á til að gefa inn ,þegar maður borðar) um næstu mánaðarmót. Það á að gera það að verkum að maður dælir í sig eftir því sem maður borðar en ekki borðar eftir því sem maður sprautar sig eins og núna er, nema ég hef náð að borða yfirleitt það sama (sjeik) og þá með sama inulinskammt á móti , en þá er þessi hreyfingaþáttur ekki alltaf réttur svo dælan er sennilega alveg magnað dæmi, á samt eftir að kynna mér það til hlýtar.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2008 | 00:40
Sykurstjórnun og veikindi
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2008 | 00:35
Vel gataðir puttar, en vel þess virði
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.2.2008 | 23:21
9 blóðsykurmælingar á dag
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2008 | 01:00
Nú er allt að ske í insulinmálum.
Já fékk í gær hringingu um að nú sé komið að insulindælubúnaði, þarf reyndar að skrá nákvæmlega á blað allar mælingar í viku,og mælingar á milli mála ,einum og hálfum tíma eftir mat, og kaffileitið, svo nóg að gera í blóðdropatöku :) en þetta þarf til að stilla sjálvirku insulin þörfina skilst mér, bara gott mál. Er búinn að vera flottur í sykrinum undanfarið, varð reyndar mjög lár í dag (0.9) um 4 leitið eftir að ég kom frá Baldey, frábærum Cronica tíma, en sennilega hefur brennslan farið vel af stað í lauginni, hef soldið verið að leggja áherslu á að auka brennsluna, fékk mér bara próteinbar og sætt kakó til að ná sykrinum upp aftur.
Ég man ekki nákvæmlega hvenær það breyttist en ég var í bulli (eins og þræl fullur)ef ég fór niður í 2 í sykrinum en núna virðist ég geta farið niður úr öllu valdi án þess að verða syngjandi fullur, hef verið að pæla í þessu og held þetta hafi breyst eftir að ég byrjaði að fá mér Nite Works.(Herbalife) ég er búinn að borða það á hverju kvöldi núna í yfir eitt ár og veit þetta hefur þau áhrif að æðarnar verða mýkri og teygjanlegri, svo blóðið flæðir betur, það hefur sennilega líka þessi áhrif að ég þoli betur lækkun á sykurgildinu í blóðinu. Sind og skömm að þessi vara sé ekki komin í sölu hjá okkur dreifingaraðilum á Íslandi, maður þarf að taka þetta með sér frá hinum norðulöndunum eða UK þegar maður skreppur þangað, en þessi vara er að megninu til hugsuð fyrir fullorðið fólk, en það er víst mjög algengt að dauðsföll hjá öldruðum séu um 4-5 leitið á nóttuni þegar hjartað slær mjög hægt, þá er betra að æðakerfið sé í lagi og betur teygjanlegt, og við sykursjúklingar erum ekki með bestu æðarnar svo þessi vara er eins og himnasending fyrir mig, fyrir utan það að bakverkirnir minnkuðu helling við betra blóðflæði í vöðvunum, og með cronica er bakið bara mjög þokkalegt.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2008 | 00:28
loka mælingar þennan mán
Jæja þá eru þessar 4 vikur búnar og ég er bara sáttur, það fóru núna 3 sentimetrar af læri og einn af upphandlegg, svo þetta er bara á góðu róli, og greinilegt aðð hreyfingin er farin að skila sér,13 sentimetrar farnir alls, og sykurstjórnunin farin að blómstra , það munar alveg rosalega að vera í föstum farveg, passa uppá matinn og svo hreyfingin.
Já hreyfingin er algjört lykilatriði, þegar ég tók af mér 35kíló sem endaði fyrir 3 árum þá var ég á fullu á bílaverkstæðinu, svo brennslan var á fullu allan daginn sem gerði gæfumuninn svo þetta var ekkert mál, en núna hef ég fundið muninn á líkamanum þar sem undanfarin 2 og hálft ár hef ég verið nánast bara í móttöku og skrifstofuvinnu, og það er ekkert smáræði sem munar á brennslunni, svo ég held að þeir sem vinna skrifstofuvinnu þurfi gjörsamlega að taka sig taki og byrja daginn á hreyfingu og svo aftur seinnipartinn til að brennslan sé virk allan sólahringinn, borða svo ekki eins og þeir séu að hlaupa maraþon á hverjum degi.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sigurður Halldórsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar