14.1.2008 | 22:55
Það eru bara allir dagar, góðir dagar
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2008 | 22:00
Allt að koma
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2008 | 20:28
Flottur dagur
Já flottur dagur , vinna til hádegis,farið þá á herba STS skóla til 5 og rétt náð svo að sjá Man u valta yfir Newcastle og það frábæra ,að geta verið á hlaupabrettinu á meðan. En morguninn 8.2 hefði mátt hafa einni eingingu meira í gærkvöldi, sjeik og svo hádegið flott 5.2 annar sjeik og nú með soyamjólk og lítilli dós af bláberjaskyri útí ,rosa gott. te og próteinbar á sts inum, var svo flottur í sykrinum fyrir matinn kjúklingabringur eldaðar í oliu + grillsósu og frosnu grænmeti, flottur matur og rauðvín með,bara magnað. Það er bara must að breyta til og mín aðferð er sú að um helgar er kvöldmatnum gerð betri skil með rauðvíni, lyftir honum uppá hærra plan, en sumir hefðu nú sennilega valið hvítt í staðinn, en ég er vanur að drekka það sem mér finnst gott, skiptir ekki máli hvort þetta eða annað á við :)
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2008 | 22:50
Sykurinn misjafn
Þá er dagur 2 kominn í breytingu,
Í morgun góður í sykri 5.7 einn sjeik í morgunmat sprautað 6 einingar humalin og 10 levemir, varð svo hár um hádegið 9.9 þó ég hafi bara borðað einn tómat í millimál svo sennilega hefur insulinið eitthvað átt í vandræðum með fitulagið en bætti 2 einingum við í hádegis skamtinn 8 í stað 6eininga og þá fann ég að ég var orðinn soldið lár rúmlega 3 enda bara búinn að borða sjeik í hádeginu líka, svo þá var borðað 2 mola þrúgusykur og eitt próteinbar um 3 leitið, fór svo á hlaupabrettið fyrir kvöldmatinn borðað svo eins og venjulega á föstudögum grillaðann hamborgara en nú var sleppt brauðlokinu og frönskunum, borðað mikið af salati með.Hafði svo reiknað með aðeins of mikilli brennslu eftir brettið,sprautaði 8 ein fyrir borgaramáltiðina svo ég varð of hár kl 22 (10.4) fyrir kvöldskamtinn, svo það var levemir(langvirkt insulin) 10 ein eins og venjulega og humalog (fljótvirkt) 4 ein, vona það geri sig vel svo ég verðir 4-6 í fyrramálið. Já það var hreyfing í gær líka , fór þá á handboltaæfingu eins og venjulega á fimmtudögum :) er með það á hreinu að hreyfing 3-5 sinnum í viku , td ganga í 30-60min eða fara í ræktina er það sem allir eiga að byrja á, til að venja líkamann við að þð er eitthvað sem er til frambúðar, en núna meðan á heilsuklúbbnum stendur er reynt að taka allavega 30 mín á hverjum degi.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2008 | 08:50
Heilsan
Jæja þá er komið að því. Mér finnst nauðsynlegt að stilla mig af, þegar farið er í að taka af sér það sem maður hefur bætt á sig. Ég var búinn að ákveða þennan dag, útaf heilsuklúbba conseptinu okkar, svo það er mjög gott að undir búa hugann að því.
Það var frábært að lesa í umsögnum og viðtölum við líkasræktarþjálfara að þetta sé lífsstíll , ekki átak. hreyfing og breytt mataræði er nauðsynlegt fyrir þá sem ætla að vera í þokkalegu formi, og ekki bara á meðan átaki stendur heldur er hreyfingin lífsstíll.Hvort sem við förum út að ganga eða í líkamsrækt , sem er bara frábært.
Ég farinn að undirbúa mig með daginn i dag svo gærkveldið var verulega vandað i sykrinum og mælingum og sykurmælingar voru bara góðar í morgun, 5.2, en mætti vera betra, sem bara kemur.
Ég mældi mig á 5 stöðum ,Brjóstmál,,mitti, mjaðmir ,læri og upphandleggur, allt stærstu mál á hverjum líkamsparti, viktaði mig reyndar líka en það gerir maður i byrjun og svo aftur eftir 4 vikur, en mælir sig vikulega.Eftir viku mun ég gefa upp allan mismun hér.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2007 | 10:00
Jólin geta verið erfið.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2007 | 16:25
Sykursýki og mín reynsla ?
Bara svona í byrjun um mig , þá var ég í meðal holdum þangað til ég var orðin 18 eða 19 ára, þá blés ég út og bætti á mig 30 kílóum á þrem árum, þá fór ég í fyrsta og eina skipti í líkamsrækt, á stöð sem hét orkubót við grensásveg var þar í nokkra mánuði og tók af mér um 10 kíló, greindist svo með insulinháða sykursýki um páskana 1983.Var alla páskana svakalega þurr í munninum og pissaði mikið,vaknaði á nóttinni til að drekka, fór svo eftir páska til heimilislæknis og var daginn eftir lagður inn á spítala, þar tók á móti mér Dr Ástráður Hreiðarsson, sem fór í gegnum það sem mín beið, að sprauta mig og hvað ég ætti að borða mikið af kolvetni hvern dag, ég man að ég var settur á 18 k sem er 180 gr af kolvetni yfir daginn, ég hélt þessu plani í nokkur ár vigtaði allt sem ég setti ofaní mig og borðaði bara samkvæmt því. Varð bara fit og fínn í holdarfari og leið vel, svo fóru hlutirnir að breytast ég fór að átta mig á að ég kunni þetta allt orðið, þekkti líkamann var farinn að læra að svindla maður bara sprautaði sig aðeins meir og gat þá borðað meir, svo uppúr 1990 þá kom unglingaveikin í þessu, ég kunni allt og gat allt, þurfti ekkert að heimsækja doktorinn eða mæla mig, ég bara dæli mínum ákveðna skammti af insulíni og borðaði svo bara að mestu leiti það sem mér datt í hug, en með því voru fylgikvillar, ég datt út , of lár(of lítið kolvetni á móti insulini) og það skeði oft að ég varð í bulli með þetta,það kom td. tvisvar fyrir að viðskiptavinir komu inná verkstæði til mín og héldu að ég væri fullur, en einhverra hluta vegna gerði ég ekkert í þessu samt,fannst þetta allt í þokkalegum málum, Svo árið 1997 dó tengdapabbi minn og það kom mér til að hugsa um mína heilsu, hann var 62 ára sem var allt of ungt, en ég hafði áhuga á að láta lífernið ekki eiðileggja meir en komið var, svo ég fór að mæla blóðsykurinn aftur og fara í eftirlit, en ég hafði fitnað helling og hélt svo áfram að fitna, og þó stjórnunin væri ágæt þá stoppaði það ekki fyrr en ég var kominn´yfir hundrað og tuttugu kíló búinn að fá aðvörun frá læknum um of háan blóðsykur og kolestrol, var að komast að hættumörkum,þetta var seint árið 2002 ég breytti til og reyndi að hafa betri stjórn á matnum, en einhvern veginn þá er maður fýkill á mat og þetta bara gekk ekki,úrkula vonar þá ákvað ég að prufa (kvennasullið) sem mér fannst , "herbalife", það var 4 júlí 2003, en um það leiti var ég líka orðinn örvættingarfullur,svo það var bara skellt í sig sjeik í 2 mál og reint að halda í við sig í kvöldmáltíðinni heima, og þetta gekk bara þrusu vel ég meira séa skar ekki niður skinnkuhorn sem við vorum að borða í kaffinu fyrr en eftir hálft ár, svo fyrir mér var nóg að taka þetta skref fyrir skref, en 2árum seinna var ég búinn að taka af mér 35kíló og leið æðislega.Ég var búinn að minnka fljótvirka insulinið til dæmis á morgna úr 16 einingum niður í 4-6´+langtímainsulinið, (en insulin er lika fitandi) og það var svo auðvelt að vita alltaf hvað maður borðaði (kolvetni) svo stjórnunin var meiriháttar,langtímamælingar 6,5 og alveg niður í 6,1, sem er alveg mega flott. En maður er með fullt af göllum og það var náttúrulega ekki hægt að halda sér svona góðum ,ég bætti á mig einhverjum kílóum en ekkkert rosalega en lenti svo í árekstri og fór ekki vel í baki og var hjá sjúkraþjálfara til síðasta vors og var í fullt af æfingum líka + að fara á hlaupabretti heima hjá mér, þá hélst þetta að mestu í lagi, en svo þegar það hætti og ég fór að slaka á þá tók mig nokkra mánuði að bæta á mig hátt í helming af því sem ég hafði létt mig, enda átfýkill mikill, það er rosalegt að lenda í svona kæruleysi, þetta er jú mitt líf sem ég er að gambla með, og þó maður borði sjeik alla morgna þá er það líka spurning hvað og hversu mikið annað maður borðar, en í oktober eða nóvember gaf ég samþykki að birta aftur mynd af mér með minni sögu í mbl á vegum Herbalife, og það var rosa erfitt að glíma við samviskuna vitandi að maður hafði ekki staðið sig en samt á heilsíðu , svo þá var komið stopp,og ég ákvað að taka aftur á þessu og ná mér aftur niður og halda mér þar , en ég ber virðingu fyrir fólki sem tekst að halda sér í því formi sem það hefur komið sér í,hvernig svo sem það hefur gert það, með góðri næringu eða og hreifingu, sem ég áttaði mig á að er algjör forsenda fyrir góðum lífsstíl, ég dustaði rykið af hlaupabrettinu mínu í morgun, sem hafði ekki verið notað af mér síðan í vor, en hálf tíma hreyfing á dag er að mínu mati nauðsynleg til að halda líkamanum í formi +góð næring hvort sem er herbasjeik eða einhver annar, ég þekki bara herbann og finnst hann æðislegur, en það eru örugglega til fleiri gerðir sem eru í lagi.Aðalatriðið er að vera tilbúinn í breyttan lífstíl, það þíðir ekkert að ná sér niður og byrja svo aftur gamla lífstílinn,en maður hneygist soldið mikið til þess, enda sjálfsagt margir búnir að lifa þanning í fleiri fleiri ár svo það tekur tíma að breyta því. Ég ætla að passa mig um hátiðirnar borða bara normal af því sem ég borða og svo 10 janúar fer ég í heilsuklúbb sem við á herbalife erum með 4 vikur í senn og ég hef ákveðið að reyna muna eftir að skrifa hér mína þanka og hvernig gengur, en ég ætla að vera búinn að vinna mig aftur niður fyrir páska, það væri frábært ef þessi skrif gætu komið einhverjum að notum, eða aðrir gætu líka komið með sýna sögu inní ,því við viljum jú að sem flestir lifi heilbrigðu lífi og fyrirbyggi vandamál .
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Sigurður Halldórsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar